Seigja
Útlit
Seigja er eiginleiki kvikefna (vökva), sem lýsir andófi (viðnámi) þeirra við ytri kröftum, sem verka á efnið. Oftast er notast við aflfræðilega seigju, táknaða með μ og hreyfifræðilega seigju, táknaða með ν.
Skilgreining
[breyta | breyta frumkóða]Skerspenna τ í vökva er jöfn margfeldi aflfræðilegrar seigju μ og hraðastiguls:
- ,
þar sem u er hraðinn í x-stefnu. Þessi skilgreining er oftast eignuð Isaac Newton.
Hreyfifræðileg seigja er skilgreind sem hlutfallið á milli aflfræðilegrar seigju og eðlismassa efnisins:
- ,
þar sem ρ er eðlismassi vökvans.